Það býr draugur hérna hjá okkur. Hann flutti hingað með mér þegar ég flutti frá mömmu. Hann er búinn að stunda það síðustu 20 árin að stela af mér flíkum. Þetta er farið að vera frekar óþolandi. Núna nýlega eru 2 bolir horfnir úr fataskápnum mínum og nokkrir bolir af Kjartani. Ég hef reyndar Kjartan grunaðan um hvarf á einum bol þar sem að honum þótti hann vera of fleginn ;-) Ekki nóg með það að draugurinn gramsi hér í skápunum heldur stal hann líka frönskulinguafóninum mínum um daginn. Ég sakna hans eiginlega mest. Ég væri örugglega orðin altalandi á frönsku ef hann hefði ekki stolið honum.

1 Comments:
Til hamingju með þetta skref. Ég hlakka til að lesa og skoða allt um ykkar athafnir og gerðir. Fleiri myndir af aðalkrúttunni takk! Og ég þarf varla að taka fram að þá á ég við heimasætuna!
Kv. moððerinnlo!
Post a Comment
<< Home