Sunday, July 30, 2006

Ef líf mitt væri kvikmynd þá héti myndin Eight Legged Freaks. Það er eins og það sé samantekið ráð hjá köngulóm hverfisins að hanga utan í húsinu mínu og skríða inn um glugga. Ég var á leiðinni í sund í gærmorgun og þegar ég er nýbúin að opna útidyrahurðina og ætla að labba út þá sá ég risastóra könguló beint fyrir framan nefið á mér. Þá hafði ein tekið sig til og ofið vef í dyragættinni um nóttina. Ekkert svakalega gáfuð þessi. Það munaði engu að ég hefði labbað beint í vefinn og fengið könkulóna beint framan í mig. Ég þarf ekkert að taka það fram að ef það hefði gerst þá hefði ég hlaupið stjórnlaust niður Norðurstíginn í æðiskasti og á endanum fengið hjartaslag. En sem betur fer gerðist það ekki og einhvernveginn tókst mér að ýta henni til hliðar með dagblaði og stökkva út.
En aftur að sundferðinni. Eftir að ég flutti niður í bæ þá hef ég byrjað að stunda Vesturbæjarlaugina eftir að hafa verið tíður gestur í Laugardalslaug. Ég verð nú að segja það að þeir í Vesturbæjarlauginni eru nú ekkert að eyða ofsalega löngum tíma í að þrífa laugina. Hún er svo grugguð og loðin eitthvað. Ég sé varla handa minna skil þegar ég tek sundtökin. Ég er mikið að spá í að eyða klukkutíma í strætóferð til að geta farið í Laugardalslaugina. Hún er miklu hreinni og fínni. Svo eru þeir með miklu betra eimbað líka.

1 Comments:

Blogger d-unit said...

já en þeir eru ekki með hommastemmarann þar á föstudögum í Laugardalnum mar.. ;)

6:37 AM  

Post a Comment

<< Home