Wednesday, July 19, 2006

Fékk furðulegt nostalgíukast um daginn. Fylltist allt í einu rosalegri löngun til að horfa á Derrick. Ég var dyggur Derrick áhorfandi á sínum tíma og fattaði það um daginn að ég sakna kauða pínulítið. Fór á netið og viti menn haldiði að ég hafi ekki bara fundið fullt af dvd með Derrick og sidekikkinum hans honum Harry Klein. Þannig að ef að einhverjum dettur í hug að gleðja mitt litla hjarta með skemmtilegri gjöf þá bendi ég viðkomandi á að fara www.amazon.de og kíkja á úrvalið.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home