Monday, July 24, 2006

Ég er orðin algjör grenjuskjóða. Ég grenja aðallega yfir lélegum amerískum sjónvarpsþáttum. Þáttum eins og Opruh, Dr.Phil og svo núna síðast Make Over: Home Edition. Já, Make Over: Home Edition. Ég hafði engar rosalegar áhyggjur af þessum grenjuköstum þegar Oprah á í hlut. Hver grætur ekki yfir hrikalegum sögum af litlum börnum sem finna ekki fyrir sársauka og þarf þar af leiðandi að rífa úr þeim allar tennurnar til að þau nagi ekki af sér hendurnar? Sá sem grætur ekki yfir því er með hjarta úr steini. En Make Over: Home Edition? Come on! Ég held að botninum sé náð.

4 Comments:

Blogger d-unit said...

ertu að fokka í mér með tannlausu börnin???

D

2:01 PM  
Blogger Lára said...

Nei! Vesalings barnið var orðið blint á öðru auganu og þurfti að ganga með hlífðargleraugu því það var að kroppa úr sér augun.

4:26 PM  
Anonymous Anonymous said...

Var veggfóðrið svona ljótt?

5:13 PM  
Blogger Lára said...

Uss...bannað að gera grín ;-)

10:42 AM  

Post a Comment

<< Home