Friday, July 28, 2006

Kosturinn við það að vinnan hans Kjartans er í næsta húsi kom berlega í ljós í dag þegar ég þurfti að hringja í hann og biðja hann um að koma heim til að fjarlægja risastóra könguló. Það tók hann ekki nema eina mínútu að koma heim og sturta kvikindinu niður. Ef að djöfullinn er með útsendara á þessari jörð þá eru þeir í formi köngulóa.....og krókódíla og jafnvel hákarla líka. Er það ímyndun í mér eða eru köngulær mikið stærri og loðnari og ógeðslegri þetta árið? Ég fæ gæsahúð við það að hugsa um þetta.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Nei Lára, held að það sé rétt hjá þér að þær séu stærri og loðnari í ár. Lenti í því í síðustu viku að missa næstum stjórn á bílnum mínum þar sem að það var ein viðbjóðsleg næstum í andlitinu á mér að spinna vef.... í fokking bílnum mínum! Þú getur rétt ímyndað þér öskurin í mér... ég var alein (hahahaha).
kv. Birna

2:30 AM  
Blogger Lára said...

Ojjjjjj....hvernig dirfðist hún?

11:50 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég ryksuga þær (ef þær eru ekki í bílnum mínum!) og læt svo ryksuguna ganga nógu lengi svo hún kafni örugglega (híhíhí, ég er drápari)
Laulau

3:28 PM  

Post a Comment

<< Home