Saturday, July 22, 2006

Skelltum okkur í dagsferð í sumarbústað í dag og höfðum það huggulegt. Á leiðinni heim keyrði ég á fugl. Get svo svarið það að það var ugla. Hún flaug yfir götuna og beint fyrir bílinn okkar. Vissi ekkert hvað ég átti að gera þannig að ég hélt bara áfram að keyra með tárin í augunum alveg miður mín yfir því sem hafði gerst. Þetta minnti mig á það þegar ég valtaði yfir kött á Skólavörðustígnum fyrir nokkrum árum. Held að hann hafi samt komist óskaddaður frá þeirri lífsreynslu...kattargreyið. Sá hann allavega hlaupa inn í garð á harðaspretti. Þar sem að ég trúi á karma þá er ég viss um það að ég á eftir að fá þetta borgað einn daginn. Ó já, örlögin sjá sko um fólk eins og mig sem keyrir miskunnarlaust yfir dýr sem í vegi mínum verða.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home