Við lúðahjónin vöktum að sjálfsögðu yfir Rockstar: Supernova í gær....og í fyrradag. Þessi sýningartími er alveg vonlaus. Við vökum til 2-3 á næturnar bara til að sjá þetta í beinni útsendingu. Ég verð eiginlega að eyða nokkrum orðum í þessa blessuðu dómnefnd. Ég fæ hræðilegan bjánahroll af því að fylgjast með þessum gaurum. Hárið á Gilby Clarke er alveg út úr kortinu og ekki er skeggið á honum skárra. Afsakið Gilby en ég hafði ekki hugmynd um að þú hafðir verið í Guns´n´Roses. Glataður gaur. Svo er það Mr. Sexual Harassment sem þekkist einnig undir nafninu Tommy Lee. Það er vandræðalegt að fylgjast með honum kommenta á flutning söngkvennanna. Hann getur ómögulega sleppt kynlífstilvísunum og ekki bætir það úr skák að maðurinn er orðinn háaldraður og krumpaður í framan sem gerir bjánahrollinn ennþá verri þegar hann byrjar að ýja að því að hann vilji stunda kynlíf með gellunum. En við skemmtum okkur konunglega yfir þessu öllu saman....af þvi að við erum lúðar.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home