Eins og ég get nú verið skemmtileg og frábær þá get ég líka verið alveg hræðilega neikvæð og leiðinleg. Er að pirra mig á þessu menningardagsæði. Öll bílastæði troðfull, bærinn stappaður og einhver kall sem er að tala í mígrafón heyrist inn í stofu til mín. Vei, gaman. Af hverju má ekki dreifa þessu yfir árið? Vilja Íslendingar ekki mæta á menningarviðburði nema þeir séu framleiddir eins og 17.júní? Ég get samt verið ánægð yfir því að tónleikarnir verða ekki hérna fyrir utan þetta árið.

2 Comments:
Þú ert ekki neikvæð og leiðinleg!!! Bara rökrétt hugsun. Af hverju er fólk að troðast svona??? skiliddiggi og ég fór ekki í fyrra og ætla ekki á næsta ári!
Laulau
jú þið eruð báðar neikvæðar og leið.... well ég get nú ekki skrifað það myndi nú aldrei meina það þannig ..
;)
d
þetta er voða gaman og stuð..
Post a Comment
<< Home