Thursday, August 10, 2006

Það er heldur betur farið að styttast í Amsterdamferðina. Ég hlakka alveg ofboðslega mikið til en á sama tíma kvíði ég líka rosalega mikið fyrir. Það verður alveg æðislegt að fara með vinkonuhópnum út og fara á góða veitingastaði, búðarráp og svo að lokum á tónleika með Madonnu. En að fara frá Hrafnhildi í nokkra daga finnst mér alveg hræðilegt. Við erum búnar að vera límdar saman í sex mánuði þannig að þetta verða rosaleg viðbrigði. Ég lít líka svo rosalegt stórt á mig sem móður að ég held að ég sé að gera henni eitthvað illt með því að láta mig hverfa í nokkra daga ;-) En hún á nú góðan pabba sem passar vel upp á hana og hún hefur líka gott af því að eiga smá "quality time" með honum.
Svo fer líka að líða að því að við flytjum út. Það er eins gott að einhver sé að plana kveðjupartý!

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Laulau:
"En hún á nú góðan pabba sem passar vel upp á hana og hún hefur líka gott af því að eiga smá "quality time" með honum. " Rétt hugsað! Hugsaðu hvað þú værir vond mamma ef þú þjálfaðir hana ekki fyrir lífið! að þurfa stundum að vera ekki með mömmu og pabba (aðallega mömmu). Hvað það væri erfitt að byrja á leikskóla!, í skóla!, eða bara ballett!
Góða skemmtun á Madonnu.

8:29 AM  

Post a Comment

<< Home