Monday, August 28, 2006

Ég er búin að vera með mjög skrítna tilfinningu síðustu sex mánuði. Svona tilfinning eins og einhver sé að fylgjast með mér. Ástæðan? Jú, síðan Hrafnhildur fæddist hafa ýmis fyrirtæki verið að senda okkur alls kyns gylliboð. Landsbankinn gaf henni 5000 kall, eitthvað barnamatsfyrirtæki sendi okkur eitthvað um daginn og núna síðast kom samfella frá SPRON inn um lúguna með loforði um 5000 krónur ef við stofnuðum reikning hjá þeim. Ekki nóg með það þá fékk ég afar persónulegt bréf frá Ágústu Johnson í vikunni. Þar óskar hún mér til hamingju með barnið. Svo kemur: "Ég veit af eigin reynslu, eftir meðgöngu með börnin mín 4, hve mikilvægt það er einmitt á þessum tíma að styrkja líkamann með reglubundinni þjálfun og langar að hvetja þig til að ná þér í fínt form (hvar ætli ég geti náð í það?). Á síðasta ári gekk líkami þinn í gegnum miklar breytingar og líklegt er að hann sé ekki alveg í sama ástandi og fyrir meðgönguna. Núna er því einmitt góður tími til að drífa sig í líkamsrækt." Svo er mér boðinn svokallaður "drífðuþignúnaafsláttur" á 8 vikna námskeið í líkamsræktarstöð Ágústu. Getur einhver sagt mér hvernig þetta fólk veit að ég var að eignast barn? Er þjóðskráin í einhverju samstarfi með bönkum og öðrum fyrirtækjum til veiða viðskiptavini? Ég vil benda bönkunum pent á að ef þeir vilja fá viðskipti dóttur minnar þá þurfa þeir að koma með betra tilboð en 5000 kall. Ég legg til að þið sendið foreldrum hennar 5.000.000 króna ávísun og þá skal ég koma með öll okkar milljóna viðskipti í viðkomandi banka.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home