Sunday, August 13, 2006

Ég og Hrafnhildur héldum upp á Gay Pride í gær með því að þramma úr miðbænum og heim til ömmu þar sem við okkur tók tómt hús því allir íbúarnir höfðu farið í bæinn til að "skoða hommana". Við sýndum samt stuðning okkar í verki með því að hlusta á Morrissey og Wham í ipodinum á leiðinni. Komst að því að lagið Wham Rap er alveg stórkostlegt meistarastykki. Smá textabrot.

Do you want to work? - NO
Are you gonna have fun? - YEAH
Do you want to be a jerk? - NO
Are you gonna stay young? - YEAH
Everybody say Wham! - WHAM!
Say Bam! - BAM!
Everybody say Wham! - WHAM!
Say Wham, Bam! - WHAM! BAM!

Fór svo á Morrissey um kvöldið. Alveg ótrúlega góðir tónleikar! Hápunkturinn var þegar hann tók lagið Life Is a Pigsty. Ég fékk gæsahúð. Maðurinn er ótrúlega mikill töffari og eldist alveg merkilega vel.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Wham, bam I am a man,job or no job, you can take it if you're not ( held ég). Do you enjoy what you do? if not then stop, don't stay there and rot....
æi maniddiggalveg....´
Laulau

12:59 PM  
Blogger d-unit said...

ég sá næstum því Morrissey í gær .. ég sat á Mímisbar og hann trítlaði í lyftuna á Hótel Sögu akkúrat meðan ég var á barnum ... andskotans..

en lífvörðurinn hans datt víst næstum því um Morra litla í lyftunni hehehe

en annað í óspurðum fréttum þá sá ég 5 brúðhjón tjekka sig inn á Sögu í gær... greinilega pure hottness að fara þangað þá ... ???

versta var að engin var í fallegum kjól... :(

D

2:37 PM  

Post a Comment

<< Home