Tuesday, August 01, 2006

Ég þreytist seint á að gera topp fimm lista hér á síðunni. Þar sem ég sit spennt hérna í sófanum að bíða eftir Rockstar Supernova og horfi á CSI þá datt mér í hug að gera lista yfir 5 leiðinlegustu sjónvarpslöggurnar.

1. Horatio Caine úr CSI Miami
2. Gil Grissom úr CSI
3. Robert Goren úr Law and Order CI
4. Columbo
5. Miss Marple

Ég átti í mesta basli með að raða í þrjú efstu sætin. Horatio og Gil eru báðir jafn ótrúlega óþolandi. Þessir karakterar hljóta bara að vera grín. Síðan fannst mér dálítið sárt að setja Goren þarna í þriðja sætið þar sem að Law and Order eru í miklu uppáhaldi hjá mér en því miður þá bara varð ég að gera það. Maðurinn er alveg rosalega pirrandi týpa.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Laulau:
Hey, mér finnast þeir allir svo leiðinlegir að ég man ekki einu sinni hvað þeir heita!

6:21 AM  
Blogger Brynja said...

Enginn kemst ekki með tærnar þar sem Horatio Caine er með hælana. Ég varð svo fegin þegar helv.. rauðhærði leikarinn úr PDNY hætti að fá hlutverk og hélt ég væri laus við fíflið. En nei... hann er ráðinn sem Horatio Caine. Þessi maður hefur andpresence á skjánum. You just wanna kill the man.

Komdu svo með lista yfir bestu líka. Chloe O'Brian úr 24 hlýtur að vera ofarlega á þeim lista.

5:40 AM  

Post a Comment

<< Home