Ég var að vafra um háskólasíðuna um daginn og kynna mér fögin sem ég fer í og svona. Sá þar eina bók sem við eigum að lesa og ákvað að taka forskot á sæluna og byrja bara á bókinni. Komst að því stuttu seinna að þetta verður engin sæla því þetta er leiðinlegasta bók sem ég hef nokkurn tímann opnað. Ég les eina síðu, tapa þræðinum eftir það og er komin í draumaheim um leið. Fer að spá í hvað maður getur haft í kvöldmatinn og svona. Ég er ekki enn viss um um hvað hún er og er komin á blaðsíðu 136. Googlaði bókina að lokum í þeirri von um að ég fyndi einhverja síðu fyrir tossa sem nenna ekki að lesa leiðinlegar bækur. Fann eina og byrjaði að lesa úrdrátt úr hverjum kafla fyrir sig. Það var alveg jafn hundleiðinlegt og að lesa bókina og hugurinn byrjaði strax að reika eitthvað annað. Næsta skref er að reyna að finna bíómyndina. Mér skilst að hún sé sýnd reglulega á Hallmark. Vonandi næ ég að halda mér vakandi yfir henni.

4 Comments:
bíddu nú við, bíddu nú við.... hvaða bók er þetta? hvaða kúrs? það er ekki leiðinlegt í ensku...... nema 1. árið!! hehe
Hard Times eftir Charles Dickens. Má ég þá heldur biðja um John Grisham takk fyrir.
Já, en svo verður hún skemmtileg þegar farið verður að fjalla um hana; krifja til mergjar. Svo er þetta grunnur að svo mörgum öðrum bókmenntaverkum heimsins.... Greinlega e-ð búið að breyta enskuskorinu síðan ég var þar....
Sko, keep an open mind to it girl, ekki hægt að ætlast til að þér þyki allt skemmtilegt hér.... þegar ég var þarna var 1. ár allt skylda, en seinna fékk maður að velja sér kúrsana og þá varð aðeins meira gamana! en það er nú píííínu langt síðan.
Laulau (gleymdi að kvitta áðan!)
hmmm.. intrígín.... þetta hljómar eins og allt háskólanám sem ég var í.... það er alltaf vibbi inn á milli en ég held að Stjórnmálahagfræði bókin hans Hannesar Hólmsteins toppi allt í leiðindum.. það var alveg sama hversu oft ég las niður blaðsíðuna ég var farin að hugsa um að slíta af mér hárið áður en ég kláraði helvítið og fékk glósur .... man það leiðileg bók að hún ætti að vera partur af refsingu á Litla Hrauni
I feel yo pain sis..
dd
Post a Comment
<< Home