Geir Ólafs um Júlla myndlistarmann í Séð og Heyrt: "Þegar ég kom og hitti Júlla fyrir tveimur mánuðum þá féll ég fyrir þessum myndum. Ég er náttúrulega mesti markaðsfræðingur þjóðarinnar þannig að ég bauð honum að sjá um markaðssetningu verkanna með því skilyrði að hann myndi hafa áhuga á því að halda sýninguna á Broadway. Þegar ég sá myndirnar sá ég Broadway fyrir mér í allri litadýrðinni því þessar myndir myndu ekki njóta sín á minni stöðum" svo kemur seinna "Júlli bætir við að hann máli bara fyrir sjálfan sig en ekki aðra" og þá bætir Geir við "Ég syng líka fyrir mig en er bara svo heppinn að aðrir fíla það"
Eitthvað segir mér að frægðarsól Júlla eigi ekki eftir að rísa hátt með Geir Ólafs sem umboðsmann.
Eitthvað segir mér að frægðarsól Júlla eigi ekki eftir að rísa hátt með Geir Ólafs sem umboðsmann.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home