Wednesday, August 16, 2006

Hvað er málið með hárið á Gilby Clarke? Ég er með tvær kenningar. Hann er annað hvort með hárkollu eða hann fer að sofa með blautt hárið og nennir ekki að greiða sér þegar hann vaknar.

Ég er alveg brjáluð. Eitthvað jeppafífl keyrði framhjá mér um daginn brunaði beint ofan í poll og skvetti öllu á mig. Núna er hvíti fíni jakkinn minn ónýtur. Ég næ ekki tjöruógeðinu úr honum. Gaurinn er ekkert smá heppinn að ég hafi ekki náð bílnúmerinu hans. Ég hefði mætt heim til hans og skrifað asni á bílinn hans með lyklinum mínum. Ég legg til að jeppar verði bannaðir innanbæjar.

En að öllu skemmtilegri fréttum þá fór Hrafnhildur í fyrsta skiptið í sund í dag með Sigurdísi frænku sinni. Henni fannst það svakalega skemmtilegt og busslaði hún og busslaði. Ég held að hún verði næsta Esther Williams.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég hlakka til að fá að sjá hana í sundi. Fyrir 14-15 árum var Þórunn kölluð næsta Esther Williams ... skrýtin en skemmtileg tilviljun!
Amma U

4:44 AM  
Anonymous Anonymous said...

Bönnum heldur ótillitsamt fólk! oft hefur ósköp venjulegur fólksbíll ausið yfir mig pollasulli og skilið mig eftir blótandi og sótandi......

12:51 PM  
Blogger Lára said...

Issss....það hefur verið einhver sem var að safna fyrir jeppa. Við minibílafólkið gerum ekki svona.

3:16 PM  

Post a Comment

<< Home