Thursday, October 19, 2006

Gerði afar aumkunarverða tilraun til að byrja að skokka í gærkvöldi. Ferðin tók heilar 6 mínútur og ég hljóp ekki allan tímann. Ég vona að svona örskokk skili einhverjum árangri eftir nokkur skipti.
Keypti mér skokkgalla í Hagkaup í tilefni af ákvörðuninni. Nennti ekkert að vera að máta. Kippti bara buxum í medium og peysu í large með mér. Hefði betur átt að máta. Það lítur út fyrir að ég hafi þurft xs í buxunum og xl í peysunni. Annað hvort eru fataframleiðendur ekki alveg með stærðirnar á hreinu eða ég svona kómísk í laginu.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home