Hrafnhildur er svo fyndin stundum. Hún nennir ómögulega að hanga á leikteppinu sínu og leika sér með dótið sitt í meira en tvær mínútur. Hins vegar unir hún sér best ofan í eldhúsvaskinum hérna hjá ömmu inni og dundar sér þar með sleifar og fleira eldhúsdót endalaust.
Hún fékk göngugrind gefins í dag. Nú líður ekki á löngu þangað til hún fer að valta yfir tærnar á heimilisfólinu.
Hún fékk göngugrind gefins í dag. Nú líður ekki á löngu þangað til hún fer að valta yfir tærnar á heimilisfólinu.

4 Comments:
Henni kippir í kynið blessaðri! Faðir hennar undi sér illa í leikgrind með fullt af eðal FissjerPræs dóti en var hæstánægður með makkintossdollur og lok af þeim svo ekki sé nú minnst á pappakassa. Við þá má glíma tímunum saman! Á líklega við um flest börn ef út í það er farið! Leikföng er stórlega ofmetið drasl í flestum tilfellum!
Amma hin!
Hvert er heimilisfólið? Ert það þú?
Hahahaha!!!TEKIN!!!!
U
þetta er alltaf svona.. sérhönnuð leikföng eru alltaf minna spennó en eitthvað svona dótarí.. ryksugur, balar, rör sem hægt er að skríða inní, að sitja í vaski er eitthvað sem ég gæti hugsað mér en kemst líklega ekki í lengur þótt ég glöð vildi
hvað segiru stelpa eigum við að taka gott chill bráðum?
er einhver tímarammi hvenær þú ferð aftur?
Post a Comment
<< Home