Monday, February 05, 2007


Í gærkvöldi horfði ég á myndine The Lake House með þeim Söndru Bullock og Keanu Reeves í aðalhlutverkum. Svo þegar ég er að glugga í blöðin í morgun þá er lítil grein um Keanu í Fréttablaðinu. Ramba svo á síðunnar hennar Drafnar og þar blasir við mér mynd af honum og tilkynning um að hann og Jennifer Aniston séu par. Var svo rétt í þessu að skoða bloggsíðu hjá stelpu sem er að tala um hvað hann sé lélegur að tala inná teiknimyndir. Mér finnst þetta eiginlega farið að flokkast undir ofsóknir.

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Sammála, ertu ekki gipt kona??
;o)

1:43 PM  
Blogger Laulau said...

Einelti, ekkert annað.

2:04 AM  
Blogger Brynja said...

Ég skal persónulega fara og elta uppi fólk sem er að stríða Keanu. Það að hann sé lélegur leikari er bara algjörlega irrelevant þegar menn eru jafn beautiful og hann er.

2:20 PM  
Anonymous Anonymous said...

Keanau er misskilinn

5:15 PM  

Post a Comment

<< Home