Tuesday, March 20, 2007

Er ekki kominn tími til að setja inn myndir af ævintýrum fjölskyldunnar? Ég held það nú bara. Það er allt ljómandi gott að frétta af okkur og erum öll í svakalegu stuði alla daga. Við erum ekki kölluð "hressa fjölskyldan" að ástæðulausu skal ég segja ykkur. Hendumst út um allan bæ á daginn og liggjum svo yfir sjöttu seríu af 24 á kvöldin. Ekki dónalegt það. Hrafnhildur er svakalega duglega að labba um allt og er komin með heilar níu tennur og þar af einn jaxl.

Hrafnhildur hitti John Lennon niðri í bæ. Henni brá svo svakalega enda hélt hún að hún hefði séð draug að hún fór að hágráta.



Úti að labba með mömmu



Heima að striplast



Allir í svaka stuði



Uppi á eldhúsborði að borða ananas

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Það er gáfumerki hjá litlum börnum að benda.

10:54 AM  

Post a Comment

<< Home