Ég hef aldrei kynnst öðrum eins tvíverknaði og að vera með uppþvottavél. Get alveg eins vaskað upp í höndunum eins og að skola af öllu áður en það fer inn í vél. Síðan skil ég ekkert í Bretum að sýna þessa ömurlegu sápuóperur sínar á besta sýningartíma á kvöldin. Svona rusl á annað hvort að blása af eða sýna það eldsnemma á morgnana.
Ef eitthvað fer í taugarnar á ykkur þá endilega fáið útrás fyrir pirringinn í kommentakerfinu.
Ef eitthvað fer í taugarnar á ykkur þá endilega fáið útrás fyrir pirringinn í kommentakerfinu.

2 Comments:
Hæ litla fjölskylda. Gaman að sjá myndir af ykkur og Hrafnhildi. Er enþá í útlegð á Akureyri. Verð hér þangað til í maí. Vona að allt gangi vel hjá ykkur. kveðja Anna Svava frænka.
Mér sýnist þú bara þurfa að fá þér almennilega uppþvottavél. Ég er persónulega alfarið á móti því að skola af dóti sem á að fara í vélina. Það er prinsipp mál hjá mér að láta ekki bjóða mér upp á þann tvíverknað. Galdurinn er að raða rétt í vélina og þá er óþarfi að skola... Nonni er ekki sammála mér ;)
Post a Comment
<< Home