Monday, March 26, 2007

Ég sé fram á að þurfa aldrei að fara aftur út á videóleigu eða hvað þá bíó í framtíðinni. Fann þessa stórkostlegu síðu www.alluc.org (kann ekki að gera link á nýja blogger). Hér get ég horft á allt sem hugurinn girnist. Sit límd yfir 24, horfði á nýjustu heimildarmyndina um Madonnu og nú síðast í gær horfði ég á Jesus Camp sem ég mæli eindregið með að fólk horfi á. Ég geri nú samt fastlega ráð fyrir því að fara annað slagið í bíó bara svona upp á stemmninguna. Finna popplykt og drekka vélakók.

3 Comments:

Blogger Laulau said...

Láttu bara ekki véla þig út í neina vitleysu Lára mín :-)

6:44 AM  
Anonymous Anonymous said...

Mjög góð síða á margan hátt en það er samt fullt af drasli sem vantar..
-þórunn

10:02 AM  
Blogger Brynja said...

Eitt mikilvægt mál ótengt þessari færslu. Þið þurfið að vera duglegri að setja inn myndir af Lil'H þegar þið farið svona með hana til útlanda frá vinum og vandamönnum :)

2:51 AM  

Post a Comment

<< Home