Talandi um ís. Munið þið eftir ísbúðinni sem var í litla verslunarkjarnanum á Háaleitisbraut? Ég fór oft þangað með mömmu og pabba þegar ég var lítil og fékk mér undantekningarlaust kúluís. Besti ísinn var kirsuberjaís sem var dökkbleikur á litinn með kirsuberjabitum í. Mikið rosalega var hann góður. Hef ekki séð þennan ís síðan að ísbúðin hætti fyrir mörgum mörgum árum. Ég vildi óska að ég gæti keypt hann einhvers staðar.....hmmmm.

3 Comments:
Prófaður Cherry Garcia frá B&J. Eflaust ekki í Háaleitisbrautarklassa en þú færð súkkulaðiflögur í bónus.
EG
Cherry Garcia! Hahahahaha, nettir tappar þeir Ben og Jerry.
Ég man vel eftir þessari ísbúð og við fjölskyldan fórum oft þangað minnir að ég hafi alltaf fengið mér kúluís með núggatbragði og svo aðra jarðaberjakúlu ofan á.
Post a Comment
<< Home