Thursday, May 03, 2007


Er búin að vera með kanadískan ríkisborgararétt í nokkur ár. Ákvað bara einn daginn að sækja um. Stóð í geðveikri pappírsvinnu í nokkra daga og nokkrum vikum seinna fékk ég sent vegabréf og ríkisborgararéttakort. Er enn að spá í hvernig ég eigi að nýta mér þetta. Einhverjar uppástungur? Allavega, í mér leynist lítil lúmsk kanadísk þjóðremba. Finnst alltaf gaman þegar ég uppgötva að einhver frægur er líka kanadískur.....my fellow Canadian hugsa ég alltaf og brosi út í annað. Uppgötvaði einmitt einn slíkan í gær. Þ.e.a.s. ég uppgötvaði að hann væri kanadískur. Það er enginn annar en Will Arnett eða Gob Bluth úr Arrested Development. Finnst stórskemmtilegt að eiga þetta sameiginlegt með honum.

4 Comments:

Blogger Laulau said...

Ooooog ég get sagst þekkja þig!

3:39 PM  
Blogger Unknown said...

Er Michael Bolton frændi þinn??

3:20 PM  
Blogger d-unit said...

nuj og Mike Myers er líka kanadabúi og Nelly Furtado nujjj

dd

2:28 PM  
Blogger Laulau said...

Pæliði í því. Þessi AHA gæti verið frændi MINN!

3:33 PM  

Post a Comment

<< Home