Það var allt að verða vitlaust í borginni í dag. Bærinn fylltist af fólki í rauðum treyjum í hádeginu þegar að pöbbarnir opnuðu. Það var mikið um tilfinningaþrungna hópsöngva og spennan í fólki mikil. Það er semsagt búið að vera mikið stuð í bænum. Við tókum að sjálfsögðu þátt í múgæsingunni og splæstum í fána. Erum búin að labba um eins og asnar með hann á kerrunni í nokkra daga.

2 Comments:
æææ því miður var þetta ekki ferð til fjár fyrir Pool-ara í Aþenu.. ég hélt með þeim ... andskotans ves .. voru allir crushed á götum borgarinnar?
dd
Já, alveg ferlegt. Fólk alveg miður sín yfir þessum fótbolta.
Er ekki röðin komin að Zodiac þegar ég kem?;-)
Post a Comment
<< Home