Þið ykkar sem eruð síkvartandi yfir lélegri dagskrá á RÚV ættuð að prófa að koma hingað og eyða kvöldstund fyrir framan imbann. Það er mun hræðilegri dagskrá hér skal ég segja ykkur. Erum með 5 stöðvar og núna þegar að klukkan er að verða hálfníu þá hljómar dagskráin svona:
Stöð eitt: Þáttur um úlfa
Stöð tvö: Þáttur um litla bæi í Bretlandi sem eru að breytast í svefnbæi
Stöð þrjú: Eastenders
Stöð fjögur: Þáttur um plöntur
Stöð fimm: Þáttur um Breta sem flytja til Spánar
Stanslaust stuð!! Ætla að læra að prjóna til að gera eitthvað próduktív á kvöldin. Þetta er ekki hægt.

2 Comments:
Hey, þú getur verið með svona prjónablogg!
Þetta kennir þér kannski að vera ekki að flækjast til útlanda. Best að vera bara heima að skemmta vinkonum sínum sem komnar eru á steypirinn.
Ykkar Hrafnhildar var sárt saknað í góða veðrinu í gær á Austurvelli og úti í garði í Mávahlíðinni.
Post a Comment
<< Home