Ég hafði klárlega vinninginn í videókeppninni sem ég var í við Hrafnhildi. Skil ekkert hvað hún var að spá. Alfie. Oj. Ekkert smá leiðinleg mynd maður. Ég hefði átt að lesa aftan á hulstrið. Það eitt að Omar Epps skuli leika í henni hefði getað sagt mér allt sem hægt er að segja um þessa mynd. Og Sienna Miller. Úff. Hugsa mig tvisvar um áður en ég læt eins árs gamla dóttur mína velja handa mér mynd. Sú sem ég valdi var ekkert brjálæðislega góð. En samt skárri.

1 Comments:
Hefurðu séð Amelie? en Jallajalla? oft góðar myndir þar sem hulstrin eru asnaleg ! og sérstaklega ef þær eru evrópskar....
Post a Comment
<< Home