Búin að hafa það mjög huggulegt í morgun. Var að klára lestur dagblaðs númer þrjú sem var að þessu sinni Blaðið. Las hræðilega grein um munaðarlausa drengi sem fundust liggjandi í eigin úrgangi á munaðarleysingjaheimili í Írak. Ferlegt alveg. Bandarískir hermenn í eftirlitsferð komu að þessu öllu saman. Svo er vitnað í einhvern liðþjálfa sem lýsir atbuarðarrásinni fyrir okkur: "Hermennirnir héldu að þeir væru látnir og köstuðu körfubolta í vegginn í tilraun til að fá einhver viðbrögð". Afsakið. Köstuðu körfubolta í vegginn? Er ég sú eina sem finnst þetta alveg fáránlegt? Af hverju löbbuðu þeir ekki bara til þeirra og athuguðu hvort þeir finndu eitthvert lífsmark? Hvað eru þeir annars að gera með körfubolta á sér í eftirlitsferð? Geri ráð fyrir að hann hafi ekki tilheyrt heimilinu miðað við myndirnar sem fylgdu fréttinni. Ekki mikið um körfuboltaleiki þar sýnist mér.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home