Saturday, June 02, 2007

Ég fæ alltaf svakalegan kjánahroll þegar ég les greinar í blöðum sem blaðamenn með þjóðernisminnimáttarkennd skrifa. Það gerðist einmitt í dag þegar ég las Fréttablaðið. Þar var verið að fjalla um tískuviðburðinn Made in Iceland. Þar stendur:

"Alvöru tískusýning í Loftkastalanum. Engu var til sparað og má alveg segja að þarna hafi farið fram alvöru tískusýning sem hægt er að bera saman við það flottasta að utan"

Svo kemur:

"Tískuspekúlantar og íslensk "seleb" sátu í fremstu röðum sýningarinnar og var orðið vel heitt á svæðinu. Fólk brá á það ráð að nota bæklinginn sem blævæng eins og sést á tískupöllunum í Mílanó og París"

Þetta hefur verið alveg rosalegt. Bara alveg eins og í Mílanó og París. Fyndnast fannst mér samt að lesa upptalninguna á "selebbunum" en þar má nefna Daníel Ágúst Haraldsson, Barða Jóhannsson, Bigga í Maus og svo að lokum Ara Edwald! Algjör bömmer að hafa ekki skellt sér.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Voru Bjarni Dagur, DJ Sóley og Friðrik 2000 ekki mætt?

2:40 PM  
Blogger Laulau said...

Hvað meinarðu kjánahroll? þetta ER eins og í París og Róm... allavegana hvað asnalegheit varðar.

3:12 AM  

Post a Comment

<< Home