Thursday, June 14, 2007

Ég hef alltaf verið haldin þeim fordómaum að ríkt fólk sé gjörsamlega smekklaust að öllu leyti og að það sé hægt að pranga allri mögulegri vitleysu inn á það sama hvað verðmiðinn segir. Nýjasta dæmið til að ýta undir þessa skoðun mína er þetta. Að einhverjum skuli detta það í hug að kaupa íbúð í forljótri blokk á 230 milljónir er fyrir ofan minn skilning. Mér er alveg sama þó að það sé útsýni yfir Esjuna. Svo er þetta réttlætt með því að segja að þetta sé svo svakalegur lúxus. Það þarf nú ekki annað en að keyra framhjá þessu ferlíki til að sjá lúxusinn í öllu sínu veldi. Þar er hægt að sjá götin á útiveggjunum eftir að flísarnar tóku upp á því að losna og detta af. Ég hef heimildir fyrir því að fólk sem keypti íbúð þarna hafi þurft að búa á hóteli á meðan verið var að laga ýmis mistök sem þar voru gerð. Þarna er greinlega verið að byggja ódýrt og selja síðan á okurverði. Er virkilega svona auðvelt að hafa fólk að fíflum?

3 Comments:

Blogger d-unit said...

ohh já ... ég þekki til fólks sem flutti þarna í svaka fína íbúð það fyrir augum að hún væri hljóðeingruð í hakk því þeim finnst gaman að spila á píano en finnst svona síðra að neyða það upp á annað fólk þó þau séu mjög góð að spila, annað parketið þeirra skemmdist því steypuplatan var ekki þurr og það eyðilagði næstum því eldhúsinnréttinguna þeirra, þurftu að taka allt dótið sitt út (nýflutt inn nota bene) til að láta slípa allt upp á nýtt, gluggarnir voru eyðilagðir á heilli hlið á einni blokk þar sem einhver eldflaugasérfræðingurinn logsauð þvottahreinsidrasl en neistaflugið flaug í allar rúður = þær ónýtar = tjón upp á milljónir, arininn sem átti svona að virka var að dæla inn kolmonoxíð inn í aðrar íbúðir og fyrir utan að húsið var slegið upp hornskakkt...

vel af sér vikið fyrir allan peninginn... meira fúskið pffff

ég er sammála þér að kaupa fokkin hæð í húsi á 740 þúsund tæpar fermeterinn er út í hött.. only in NYC would i do that.. maður byggir bara hús fyrir þennan pening.. meiri vitleysan...

d

9:10 AM  
Blogger Lára said...

Einmitt. Frábær fjárfesting.

1:27 PM  
Blogger Laulau said...

Margur verður af aurum api.

3:05 PM  

Post a Comment

<< Home