Saturday, June 16, 2007

George Michael- Freedom 90

Hafiði tekið eftir því að stóru tískublöðin eru næstum hætt að nota alvöru fyrirsætur á forsíðunum hjá sér? Það eru bara leikkonur þessa dagana. Svo eru þær líka orðnar andlit flestra tískuhúsa og snyrtivörufyrirtækja. Ég man eftir því þegar að súperfyrirsæturnar réðu ríkjum. Konur eins og Cindy Crawford, Linda Evangelista og hvað þær nú hétu allar. Aaahhh....those were the days. Ég verð að viðurkenna að þetta pirrar mig dálítið og ég er hálfpartinn móðguð fyrir hönd þessarar starfsstéttar. Ég veit ekki af hverju en ég hef engan áhuga á að kaupa vörur af fyrirtækjum sem nota Lindsay Lohan og Scarlett Johansson í auglýsingar sínar. Neihei, hér með set ég viðskiptabann á Miu Miu og Louis Vuitton.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Töff!
ask

6:37 PM  
Blogger Laulau said...

En... er ekki betra að leikkonur verði ,,silent" módel heldur en að módelin fari yfir í að ,,leika" ?

3:55 PM  
Blogger d-unit said...

þetta er reiðarslag fyrir LV og Prada þar sem þú varst þeirra stærsti kúnni ;)

luv dd

5:48 PM  

Post a Comment

<< Home