Hall and Oates - Out Of Touch
Ég er ekki að grínast þegar ég segi að ég hafi elskað þetta lag áttatíu og eitthvað. Fannst þeir líka svo fyndnir eitthvað. Ég sá svo hrikalega fyndinn "sketch" þátt einu sinn þar sem var verið að gera grín af þeim. Þá voru þeir í eihverju stríði við veggjakrotara eða eitthvað álíka. Sá sem lék þennan dökkhærða var á hnjánum allan tímann...hahaha. Hljómar kannski ekkert eins og þetta hafi verið fyndið en það var það nú samt. Ég sver það. Man einhver hvað þessi þáttur hét?

4 Comments:
89 af stöðinni?
Var það einhvern tímann fyndið?
heyrðu - ég var að horfa á þennan skets í gær. Þetta er í fyrstu þáttaröðinni af Big train sem þú ættir að geta nálgast á allluc eða einhverju sambærilegu. En svo voru þeir líka að gera grín af sjálfum sér í nýlegum Will og Grace - mér fannst það líka soldið fyndið...
En ég mæli með Big Train...
Hvurslags snillingur ertu eiginlega Olla?! Ég tékka á þessu eins og skot. Takk :-)
Post a Comment
<< Home