Monday, June 11, 2007

Hurdy Gurdy Man (rendition) - Donovan

Ég fór í bíó með Dröfn í gærkvöldi. Við sáum Zodiac. Góð mynd. Mæli eindregið með henni. Ég var búin að bíða spennt eftir henni lengi. Manneskja sem les bækur á borð við The A to Z Encyclopedia of Serial Killers, Inside the Minds of Serial Killers og skoðar síður eins og þessa sér til skemmtunar getur einfaldlega ekki látið Zodiac framhjá sér fara. Skil ekki hvaðan þessi áhugi minn kemur. Var gífurlega spennt þegar ég sá um daginn að það ætti að gera mynd um Richard Ramirez en sú spenna dó nú fljótlega þegar ég sá að enginn annar en vinur minn hann Marc Anthony ætti að leika hann. Skil ekki hvaðan sú hugmynd kom. Afleit hugmynd segi ég. Næstum því jafn slæm og að láta Marc Harmon leika Ted Bundy á sínum tíma. Auðvitað átti Greg Kinnear að fá það hlutverk. Eníhú. Heyrði svo skemmtilegt lag í myndinni í gær. Læt það fylgja með.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home