Yeah Yeah Yeahs - Gold Lion
Við hér hjá Mergjuðu Flippi elskum þetta lag. Söngkonan er engin smá gella. Mig langar í svona hárgreiðslu. Ætti ég að slá til næst þegar ég fer í klippingu? Ég væri samt örugglega ekki eins smart og hún með hana.
Var annars að uppgötva tvo alveg skelfilega hluti. Sá fyrri er að ég fattaði það í gær að ég er búin að tala um sjálfa mig í þriðju persónu í næstum 15 mánuði. Sá síðari er að þegar ég var að keyra um daginn þá kom lag með Marc Anthony í útvarpinu. Ég var greinilega hálfsofandi við stýrið því að ekki skipti ég um stöð. Haldiði að ég hafi ekki kunnað allt lagið!! Söng meira að segja með og allt. Man ekki einu sinni eftir því að hafa nokkurn tímann hlustað á heilt lag með Marc Anthony. Skelfilegt.

1 Comments:
Ætti kannski að benda Viktoríu á búninginn!
Post a Comment
<< Home