Þá erum við komin aftur til Liverpool eftir að hafa verið í viku á Spáni. Þetta var alveg æðislegt. Gerðum ekki neitt nema hanga úti í góða veðrinu og borða ís. Ég veit ekki með restina af Spáni en Costa Brava er himnaríki þeirra sem elska kúluís. Fengum okkur minnst einn á dag. Staðurinn sem við vorum á var fullkominn fyrir fjölskyldur. Engin djammlæti og vesen og allt mjög snyrtilegt og fínt. Hápunktur ferðarinnar var án efa dagsferð til Barcelona. Ótrúleg borg. Þangað fer ég aftur seinna til að skoða borgina betur. Hér eru nokkrar myndir.
Fyrsti ísinn af mörgum. Þess má til gamans geta að Hrafnhildur sagði ís í fyrsta skipti á ævinni. Slíkur var ísáhuginn.

Mætt á ströndina.

Við máttum ekki labba framhjá leiktækjum án þess að Hrafnhildur heimtaði að fá að prófa. Það var að sjálfsögðu látið eftir henni.

Gott að hvíla lúin bein eftir mikið labb. Maður er samt aðeins of sjálfstæður til að sitja við hliðina á pabba sínum.

Hmmmm.....ís.

Við mæðgurnar í Barcelona.

Það var alltaf stoppað reglulega á "lóló".

Strandarstuð.

Við fórum að sjálfsögðu líka í vatnsrennibrautagarð. Hrafnhildur lét sér þó nægja að hanga í sundlauginni.

Leigðum okkur hjól og hjóluðum aðeins um svæðið.

Hahahahaha.......ís.

Í hótellauginni.

7 Comments:
Ohhhh hvað þetta hljómar vel og myndirnar tala sko sýnu máli. Hér rigndi ekkert í dag, en það er spáð hellidembu á morgun (svona til að bæta það upp)... Spurning um að flytja bara til Spánar...
Vá hvað það hefur verið geðveikt hjá ykkur! Magnaðar myndir líka :)
-þórunn
Það er eins og Hrafnhildur sé mætt á Cannes með bleika hattinn á ströndinni - og búin að æfa pósurnar þokkalega...
Gaman að sjá myndir og gott að það var gaman. Bestu kveðjur úr vestó.
Hvað það hefur verið notalegt hjá ykkur á Spáni. Yndislegar myndir af uppáhaldinu, þessi á stoppistöðinni er frábær ;-)
Fáum við nokkuð að sjá nokkrar frá hótelinu? Varettekki lúxushótel?
Og kassgi nokkrar frá Barcelona?
U
Gaman að sjá myndir sérílagi af litlu ísstelpunni ;))
Frábært þetta heppnaðist vel hjá ykkur fjölskyldunni. Nú leggjum við í hann á morgun..
kossar frá okkur mæðgum
Yndislegt!
Frábærar myndir. Ekkert smá flott í bleika sundbolnum með litlu bumbuna sína!
Post a Comment
<< Home