Friday, July 06, 2007

Ég tók þá ákvörðun fyrir svolitlu síðan að hætta að pirra mig á hlutum sem skipta engu máli. Lífið er of stutt til að eyða því í pirring og vitleysu. Þetta kemur sér afskaplega vel í umferðinni. Núna svíf ég um á mínum löglega hraða, er alveg sama hvort einhver svíni fyrir mig og hlæ að vitleysinni í Gassa og Gussu á FM í staðinn fyrir að pirra mig á heimskunni. En í dag reyndi heldur betur á mína innri ró og frið. Það er hljómsveit byrjuð að æfa í næsta nágrenni við mig (er ekki enn búin að komast að í hvaða húsi hún er). Hún æfir fyrir hádegi og spilar lög eftir AC/DC, Queen og Led Zeppelin. Gerir þetta ekki einu sinni vel. Sem betur fer lítur út fyrir að bandið sé ekki búið að redda sér söngvara.
Málið er að ég er í svo miklu fríi þessa dagana að ég legg mig stundum rétt fyrir hádegi. Ég veit að það er fáránlegt en það er bara svo ljúft að ég stenst það bara ekki. Þetta raskaði því lúrnum mínum. Hvað á maður að gera? Er leyfilegt að leyfa lélegri hljómsveit að æfa í miðju íbúðarhverfi? Ég náði nú sem betur fer að leiða þetta hjá mér á endanum og sofnaði að lokum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home