Sunday, July 01, 2007

Komst að því um daginn mér til mikilla vonbrigða að mér verður sennilega aldrei boðið að verða meðlimur í gáfumannafélaginu Mensa. Var að skoða síðuna þeirra (guð má vita af hverju)um daginn og svona til gamans datt mér í hug að taka eitthvað sem þeir kalla Mensa Workout. Byrjaði á fyrstu þremur spurningunum fékk þá hausverk af áreynslu og gafst upp. Mikið er ég skúffuð.

Ég er annars farin að hafa miklar áhyggjur af yfirdrifnu nammi- og ísáti mínu. Ég held að ég hafi aldrei borðað eins mikinn ís á ævi minni eins og síðustu mánuði. Það er nokkuð ljóst að þetta á aðeins eftir að enda á einn veg. Eins gott ég verði dugleg að hjóla þegar hjólið kemur úr stillingu á þriðjudaginn. Get þá þeyst um götur borgarinnar með dótturina aftan á. Eins gott að forðast allar brekkur.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ís er hollur. Hann nefnilega inniheldur mjólk/rjóma og er því uppfullur af kalki (sem er nauðsynlegt fyrir beinin)... Þetta segi ég sjálfri mér í hvert sinn sem ég fæ mér ís :) Djö. væri ég annars til í bragðaref/þeyting núna... það er sko eitthvað sem bretarnir mættu læra

3:18 PM  
Anonymous Anonymous said...

Um að gera að hjóla bara niður brekkur og taka svo skutlu heim. Með þessu móti fer ísinn ekki af!
Kv. tengdó

5:37 AM  

Post a Comment

<< Home