Tuesday, July 10, 2007

Loksins erum við mæðgur komnar aftur til Liverpool eftir langt ferðalag. Þetta tók heila níu tíma í þetta skiptið ef með er talinn akstur upp á flugvöll. Náðum að sofa vel í nótt og í dag verður farið í búðir til að birgja okkur upp af nauðsynjum fyrir Spánarferðina á fimmtudaginn, eins og bikiní og sólarvörn. Mikið hlakka ég til.
Komst að því mér til mikillar skelfingar að við fljúgum með Ryanair en mér líst ekkert á það flugfélag eftir að ég sá þessa heimildarmynd sem gerð var um það fyrirtæki. Jæja, best að drífa sig út og njóta góða veðursins.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home