Monday, July 23, 2007

Nýasta hrósyrðið hér í landi er fundið upp af Kate Moss og vinkonum hennar. Orðið er "rexy". Endilega giskið á hvað það þýðir.

Núna tel ég dagana í Londonferð. Fer á fimmtudag og kem tilbaka á sunnudag. Ætla að skella mér með Bibbu, Rósu og Kristínu á Scissor Sisters tónleika og að sjálfsögðu að kíkja í búðir og á góða veitingastaði. Mikið verður gaman hjá okkur.

Horfði á þáttinn hennar Victoriu Beckham, Coming to America, í gær. Var búin að bíða lengi eftir honum á netinu. Loksins sá einhver öðlingur aumur á mér og tók þáttinn upp beint af sjónvarpinu sínu með videókameru og setti á netið. Ég lúðinn horfði síðan á hann með ömurlegu hljóði og alltaf glitti í panasonicmerkið sem var á sjónvarpinu hans. Sem betur fer tókst honum að hafa hljótt á meðan á upptökum stóð. Þátturinn var síðan ekkert spes. Veit eignlega ekki við hverju ég bjóst.

4 Comments:

Blogger Brynja said...

You sexy anorexic girlfriend!

Ég er smá öfundsjúk yfir London ferðinni ykkar. Væri sko meira en til í að vera með. Er viss um að þetta verður fab.

Knús,
B

8:15 AM  
Blogger Lára said...

Jáhá! Brynja giskaði á rétt. Þetta eru nú meiri lúðarnir. Ha?
Þín verður sko sárt saknað í London. Við munum pottþétt skála fyrir þér :-)

10:30 AM  
Blogger Brynja said...

Lára, er þetta ekki eitthvað fyrir þig? Nýr raunveruleikaþáttur:
http://www.tvguide.com/news/lost-boys-reunite/070604-02

4:30 AM  
Blogger d-unit said...

hehehe ég var að fara segja anorexy en real sexy gæti líka gengið.. klikkað þetta lið

luv dd

6:18 PM  

Post a Comment

<< Home