Áður en ég skelli inn myndum af frænkum í sveitaferð þá verð ég að koma tvennu á framfæri.
Í fyrsta lagi vil ég lýsa undrun minni á því að það skuli enginn frá Haagen Dazs umboðinu vera búinn að redda þessu með Banoffee ísinn. Þyrfti eiginlega að hafa samband og ýta á eftir þessu.
Í öðru lagi vil ég kvarta yfir fólki í auglýsingaskiltagerð sem kann ekki að skrifa rétt. Nú er ég sko alls ekki fullkomin þegar það kemur að því að tala eða skrifa fullkomið mál en ég vinn ekki á vinnustað þar sem það sem ég skrifa er birt opinberlega. Í gær var ég í Bónusvideói og í glugganum var auglýsing sem á stóð: "Laugadagar eru nammidagar". Í dag var ég í Kringlunni, nánar tiltekið í ísbúðinni við Hagkaup. Þar rak ég augun í matseðilinn sem hangir á veggnum hjá þeim. Þar stóð: "Taktu með heim líter". Þetta fer svakalega í mig. Þarf eiginlega að hafa samband og kvarta yfir þessu.
En jæja, best að hætta allri neikvæðni og birta myndir. Gjörið svo vel.
Frænkurnar á leiðinni út í fjárhús.

Þar knúsuðum við litla kettlinga.

Vöppuðum síðan um fjárhúsið.

Hrafnhildi og Sigurdísi fannst æðislega gaman að stappa í pollunum á leiðinni heim.

Fórum í gönguferð en sumir nenntu ekki að labba.

Uppi á risastórum nýtísku heybagga.

Hrafnhildur á leiðinni heim. Hinar ennþá eitthvað að vesenast.

Stuð á þríhjóli.

4 Comments:
Æðislegar myndir. Pollamyndirnar finnst mér samt sætastar... ofsalega einbeittar :)
Þær eru meiri krúttin frænkurnar þrjár.
U
hrafnhildur ...munch munch... í polló. sakna þín lári.
Sömuleiðis Tinni minn. Flyt í bæinn í næstu viku. Kíki í búðina!
Post a Comment
<< Home