Blondie- Atomic
Ég náði merkum áfanga í lífinu í dag. Ég kláraði að mála það sem ég ætlaði að mála í íbúðinni. Þessi þrælskemmtilega vinna er búin að taka um það bil 4 vikur. Gerir aðrir betur. En ég afrekaði nú ýmislegt annað í dag. Ó já. Ég bar t.d. samtals 400 kíló af flísum, steypu, tré og rörum út í greiðabíl, ryksugaði, skúraði tvisvar, raðaði húsgögnum og setti saman bókahillu. Núna vona ég að þessir blessuðu iðnaðarmenn fari að vinna vinnuna sína og klára það sem þeir þurfa að gera þá getum við bara farið að flytja inn. Jibbíkajei! Þá geta vinir og vandamenn farið að búa sig undir matarboð, spilakvöld og almenn skemmtilegheit. Núna er ég að lamast af þreytu en get ekki farið að sofa strax af því að Law & Order er klukkan tíu.
Tilvalið að halda sér vakandi með því að hlusta á Blondie.

1 Comments:
Jibbíkajei!!! Dugleg ertu kæra.
Post a Comment
<< Home