Friday, September 07, 2007

Ég á ekki von á því að ritstjóri DV lesi þessa síðu, ekkert frekar en umboðsmaður Haagen Dazs á Íslandi. En ég ætla samt að koma smá kvörtun á framfæri. Var að lesa DV í gær og rakst þar á frétt um aftökur em fóru fram í Íran í vikunni. Frekar ógeðsleg frétt en stundum verður maður bara að fá að vita hvað heimurinn sem við búum í er ógeðslegur. Það sem mig langar til að vita er hver í andskotanum (afsakið) átti þá hugmynd að myndskreyta fréttina? Var í alvöru nauðsynlegt að troða þessu framan í mann? Call me crazy en ég hef engan áhuga á að sjá myndir af hengingum með morgunkaffinu.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home