Ég er í nettu áfalli. Er búin að vera að mála íbúðina eins og vitleysingur síðustu vikur og komst að því mér til mikillar skelfingar áðan að ég er nánast búin að mála íbúðina bleika. Þetta er hræðileg uppgötvun. Það er orðið full seint að breyta um lit núna þegar verkinu er nánast að verða lokið. Hvað skal gera? Spurning um að kaupa lottó á morgun og næsta miðvikudag, vinna pottinn og fá fagmenn til að mála allt upp á nýtt. Svo er kannski spurning um að hafa samband við Innlit/Útlit og fá þau með sér í lið. Er líka með eldhús sem þarf nauðsynlega að taka í gegn og baðherbergi sem er í rúst. Nóg að gera.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home