Thursday, November 15, 2007

Þið munuð aldrei trúa því hvað gerðist hjá mér í dag. Ég lagði óvænt leið mína í Nóatún í JL húsinu til að kaupa ýmsar nauðsynjar fyrir heimilið. Ákvað af gömlum vana að kíkja í ískælinn og athuga hvort eitthvað væri að frétta. Hvað haldiði að ég hafi séð? Banoffee ísinn!!!!! Ég gaf frá mér smá gleðióp og skellti tveimur stykkjum í innkaupakörfuna. Er nú þegar búin með einn. Hann var alveg jafn góður og mig minnti. Þetta er ótrúlegt. Ætli þetta sé tilviljun eða ætli Haagen Dazs gaurinn/gellan lesi bloggið mitt?

En mikið er annars Dagur borgó eitthvað leim. Einhver 12 ára stelpa hringir til að kvarta yfir leikvellinum á skólalóðinni sinni og hann bara mætir með sjónvarpslið með sér til að sýna hvað hann sé nú líbó gaur sem hlustar á borgarbúa. Ætli hann komi hlaupandi ef ég hringi og bið hann um að koma til að sjá hversu absúrd hugmynd það er að byggja risahlussuhús upp við stofugluggann minn? Ég efa það. Það er samt kannski enn von fyrst ísmálið reddaðist.

3 Comments:

Blogger Hrólfur S. said...

Hvað er banoffee? banana-toffí?

12:25 PM  
Blogger Lára said...

Já! Ég skal færa þér dollu þegar þú kemur heim.

2:05 PM  
Blogger Hrólfur S. said...

Ó takk! Ég ætla að bjóða þér í partí.

1:54 PM  

Post a Comment

<< Home