Sunday, December 09, 2007

Það er eitthvað mjög óhugnalegt að gerast hjá mér núna. Í gær hugsaði ég: ætti maður kannski að fara og sjá jólalest coca cola í dag? Væri það ekki skemmtilegt?
Í dag fékk ég alveg svakalega löngun til að drífa mig í IKEA til að kaupa jólaskraut. Klukkan þrjú á sunnudegi. Ég þurfti ekki að hugsa það tvisvar heldur dreif mig barasta af stað og skellti mér út í umferðina. Þetta hefur aldrei komið yfir mig áður. Er ég að breytast í plebba?

3 Comments:

Blogger Laulau said...

Nei, þú ert að breytast í ósköp venjulegt foreldri!

7:49 AM  
Anonymous Anonymous said...

Held það séu frekar helvítis áhrif desember prófa sem eru að hafa áhrif á þig. Þá tekur maður upp á alls konar vitleysu bara til að þurfa ekki að læra - t.d. að horfa á vibba þætti á nóttunni. Hafðu engar áhyggjur, þú verður orðin eðlileg aftur svona í febrúar...
Gangi þér vel.

3:47 AM  
Blogger d-unit said...

sko.. ég flestum tilvikum myndi ég segja um aðra hreint og klárt já en ég er ekki frá því að Silla sé gjörsamlega að hitta naglann á höfuðið þar maður gjörsamlega gerir hvað sem er til að sleppa því að læra - ég hef horft á heilan táknmálsfrétta þátt.... !!! gæti fyglst með málningu þorna í marga tíma en að lesa eina blaðsíðu í "Gagnagreining: Sambönd og fylgnistuðlar"

þú lagast í feb jafnvel jan ef þú heldur partý ;)

luv dd

5:15 PM  

Post a Comment

<< Home