Ég er sú eina sem er vakandi á heimilinu þessa stundina. Einhverra hluta vegna er ég búin að snúa sólarhringnum við. Er að horfa á Dr.90210 á E og þar var verið að sýna svuntuaðgerð á konu einni. Ég píndi mig til að horfa á hana frá byrjun til enda. Hvað í ósköpunum fær fólk til að fara í svona? Þetta er ógeð. Akkúrat núna er dóttir konunnar að skoða tvö risastykki sem voru skorin af konunni. Hún fær að klappa þeim og lyfta þeim upp. Guð hjálpi mér ef mér dettur einhverntímann í hug að fara í svona. Ég held það sé lítil hætta á því eftir þetta. Næsta aðgerð á dagskrá er á manni sem er með "severe hidden penis". Það ætti að verða fróðlegt að sjá.

1 Comments:
HAHAHAHAHAH ÉG SÁ ÞENNAN ÞÁTT.. sjiii
þetta var ógeð þegar hún var að klappa fituhleifunum iiieww og svo ekki sé minnst á kökuna sem hún gaf mömmu sinni sem var eins og kjóthleifarnir sem voru skornir af henni HALLÓ!!
ógeð
dd
Post a Comment
<< Home