Tuesday, January 01, 2008

Gleðilegt nýtt ár!!! Eða gleðilegt ný tár eins og einn góður útlenskur gestur sagði í gær. Ég var svo lánsöm að fá ælupest í gær þannig að ég er búin að liggja í rúminu og horfa á Sex and the City í dag. Mistti af skaupinu og alles. Skilst að ég hafi ekki misst af miklu.
Hef ákvðið að strengja nokkur áramótaheit í þetta skiptið. Þau eru:

1.Borða mikið af góðum mat.
2.Vera duglega að mæta í ræktina. Nauðsynlegt vegna liðs númer eitt.
3.Vera dugleg að bjóða fólki í mat og í heimsókn almennt.
4.Hafa það huggulegt og gott.
5.Læra eitthvað nýtt á árinu.

Ætla að halda áfram að horfa á SATC þangað til ég get staulast fram úr.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home