Sunday, January 27, 2008

Rapport Blogg!!!

Skemmtilegur dagur að baki. Svaf næstum því til hádegis og hékk bara eitthvað fram eftir degi. Eldaði síðan eina af betri máltíðum sem ég hef eldað um ævina heima hjá mömmu. Þeir sem hafa áhuga á að smakka vinsamelgast skráið ykkur í kommentakerfið og ég býð í mat! Þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.
Horfði svo á Glæpinn og fékk mína vikulegu gæsahúð við það. Veðbanki Láru spáir því að það séu 70% líkur á að Rie sé morðinginn, 15% að það sé mamman og 15% Bremer. Get ekki beðið eftir lokaþættinum. Hvað tekur þá við á sunnudagskvöldum? Á hvað get ég horft til að fylla upp í gatið sem Glæpurinn mum skilja eftir? Er ég kannski full dramatísk? Gæti verið.
Síðan skellti ég mér í bíó með Þórunni. Sáum Cloverfield. Þið (Brynja) sem gerðuð grín að mér fyrir að vilja sjá hana og sögðuð að þetta væri örugglega ömurleg mynd, skuluð gjöra svo vel og éta það allt saman ofan í ykkur.

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Pant koma í mat!
En já þetta er rosaleg mynd maður, möstsí sko.
Takk fyrir það lára mín ;)
-Þórunn

12:14 PM  
Anonymous Anonymous said...

Pant koma í mat líka! Hugsa ennþá um sultaða laukinn oft á dag. Hey-eða þú sérð bara um eldamennskuna í sumarfríinu-ótrúlega góð hugmynd!
-silla

2:09 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég vil endilega koma í mat.

3:25 AM  
Blogger Unknown said...

Mig langar lika í góðan mat, ekki síst pizzuna sem var í boði um daginn, namminamm.
Eg veðja á Morten aðstoðarmann. Annars skilst mér að plottið sé mjög ódýrt og spæli mann!
Svo bið ég um aðra tilraun á myndir af snúllu og snúlluvinum takk.
U

1:16 PM  
Blogger Brynja said...

Hvenær á ég að mæta í mat?

Lára, það hefur gerst áður að þú hefur fílað mynd í botn sem öllum öðrum (mér og Rósu) fannst rusl. Sbr. hér um árið þegar þú fékkst okkur til að hætta við að fara á Purple Rain til að fara á gervigubbs-ruglið sem enginn man lengur hvað heitir. Ég er því ekki búin að bíta úr nálinni með að Cloverfield sé léleg.

3:54 AM  

Post a Comment

<< Home