Ég er búin að vera viðskiptavinur hjá einni af betri baðstofum bæjarins í smá tíma í von um að koma mér í betra form. Ég hef nokkrum sinnum orðið vitni að dálitlu sem ég hélt að væri ekki félagslega viðurkennt athæfi, allavega ekki í almenningssturtum og á miðju gólfi í búningsklefum. Það er þegar konur eru að raka á sér.....þið vitið hvað. Nú spyr ég: Er þetta ekki algjört faux pas? Eða hvað?

6 Comments:
Jú mjög ósmekklegt hvort sem fólk er að raka á sér fésið eða þarna down south. Er ekki skilti á veggnum þar sem segir að ALLUR rakstur sé bannaður? Ég myndi kvarta í afgreiðslunni.
U
Nei, það er ekki skilti þarna, ég athugaði það í morgun eftir að hafa verið ein í sturtu með gellu sem var að raka sig. Og ég ætla að spyrja um þetta í afgreislunni næst, setja mig inn í þetta mál betur. :) En það sem kemur mér líka á óvart eftir að hafa verið í Baðhúsinu í mörg ár og er bara nýbúin að færa mig yfir, það er sumar gellurnar þarna. Ein þeirra er með 10 hringa sem eru bara úr demöntum og síðan er hún með úr og hálsmenn og allan pakkann, en til að toppa þetta þá sléttir hún á sér hárið fyrir æfingar líka. Hún æfir sem sagt í meiri múderingu en ég þegar ég fer út að skemmta mér!! Ój, hvernig er hægt að svitna með allt þetta á sér???? Hún er pottþétt vel rökuð að neðan líka.
ask
Já! Ég hef tekið eftir þessu. Sumar mála sig áður en þær fara upp! Hvað er málið með það?
Já, og til að bæta einu við sem ég ÞOLI ekki þá er það þegar gellurnar labba alltaf inn á helvítis skónum, hvað er það? Vá, hvað ég er að fara upp í afgreisluna og KVARTA! Ætla að vera ýkt leiðinleg, þetta er ógeð. Standa þarna í útiskónum og blása á sér hárið!!! OHHHH!
ask
Ég hélt að þetta væri bara bannað. Fyrir utan það, er ekki óþægilegt að vera með "skeggbroddana"
sjitt ég lenti í þessu í World Class niður í bæ þegar það var þar og bara ein svona austantjalds -dans-listamaður að skvera á sér rottuna í sturtunni.. sorry ég bara er alveg á því að þetta sé ekki félagsleg athöfn sem þarfnist áhorfenda..
hilsen
dd
Post a Comment
<< Home