Wednesday, February 13, 2008

Ég er brjáluð!!!!!

Ég fór í Bónus og Krónuna í dag til að kaupa inn ýmsar nauðsynjar fyrir heimilið. Keypti svosem ekkert rosalega mikið en gekk út með reikning upp á næstum því 9000kr!!!!! Ég er búin að fá nóg af þessari helvítis vitleysu. Hversu lengi á maður að láta fara svona með sig? Á meðan við vitleysingarnir látum hafa okkur af fíflum í hvert skipti sem við rennum kortinu í gegn hjá þessu liði þá situr Jón Ásgeir og hans líkar með vindilinn í kjaftinum í penthouseíbúðinni sinni í New York og hlær að okkur. Ég segi hingað og ekki lengra. Ég heimta byltingu hér!! Hver er með mér? Ég legg til að við hópum okkur nokkur saman og stofnum hálfgert samyrkjubú. Ég gæti til dæmis séð um að rækta kartöflur fyrir okkur og þú Laulau gætir séð um kál og Silla þú sérð um kryddjurtirnar og svo framvegis. Hvað segiði?
Ég hef líka eytt síðasta þúsundkallinum í bensín takk fyrir. 140kr fyrir einn lítra af bensíni? Ertu að djóka? Nei takk! Héðan í frá mun ég ekki láta sjá mig á bensínstöðvum bæjarins. Kaupi ekki einu sinni tyggjópakka hjá þeim.

Svo er ég líka hætt að taka þátt í þessum viðbjóði:


http://www.guardian.co.uk/business/2007/sep/03/retail.supermarkets

Fyrst ég er byrjuð að kvarta og kveina þá er best að ég taki það fram að ég ætla ekki að kjósa í Reykjavík fyrr en það er búið að skipta öllum út úr öllum flokkum.

Takk fyrir.

9 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Heyr heyr lifi byltingin!!! Verst að ég er svo löt að ég verð að keyra - og svo verð ég stundum svöng og þá verð ég að fá mér að borða... djö.

Á gleðilegri nótum: til hamingju með daginn! Það er ennþá verið að syngja hún á ammæli hún haddiddur á okkar heimili og við tökum sko hressilega á því á eftir í tilefni dagsins.

Kossar og knús á afmælisbarnið.

5:20 AM  
Blogger Laulau said...

Byrjuð að undirbúa jarðveginn! og svo verð ég svakalega fit og flott eftir alla kálréttina og allt labbið um allan bæ :-) bara gott mál. Annars ... væri sniðugt að hafa svona samyrkjubú úti á landi. Flúðum t.d. þar sem við getum ræktað allan ársins hring.
Þú ætlar s.s. ekki að kjósa aftur?
Til hamingju með daginn í dag.
XXX frá fólkinu í hæstu hæðum.

5:36 AM  
Blogger Lára said...

Takk takk. Afmælisbarnið er hresst í dag :-)
Verst að ef samyrkjubúið yrði á Flúðum þá þyrfti ég sennilega að slá í púkk í fyrir bensíni :-/

6:24 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ef maður beinir viðskiptum sínum frá Bónus - þá fær bara hinn ríki kallinn sem á allt á móti Bónusfólki péninginn! Sjitt - (afsakið orðbragðið) ótrúlega óþolandi.
- Vonandi að einokunarverslunarinnar verði getið í sögubókum þegar fram líða stundir. Kannski spyr ömmubarn Hrafnhildar hana hvort langamma hafi líka neyðst til að kaupa í matinn í Bónus, svona eins og sagt hafi verið frá í skólanum.... hm
Til hamingju með "ammælisstúlkuna" eins og þj komst að orði einusinni. Kkv SHG:)

9:06 AM  
Anonymous Anonymous said...

Eina ráðið er að stela úr búðunum.

4:31 PM  
Anonymous Anonymous said...

Afhverju gerið þið ekki eins og ég? Borðið bara það sem að ykkur er rétt. Í vinnunni borða ég og svo læt ég bjóða mér í mat villt og galið, þess á milli er það bara popp. Enda mjög latur kokkur.
ask

6:46 AM  
Blogger Laulau said...

Þá þarf ég að fá mér vinnu!!! og hver vill svo sem bjóða mér í mat?!!
Nei, held að ég verði að finna betra ráð en það askur minn.

7:43 AM  
Blogger Lára said...

Líst vel á tillögur anonymous og Önnu Svövu.

2:34 PM  
Anonymous Anonymous said...

Förum bara öll saman til útlanda og verum þar.

11:40 AM  

Post a Comment

<< Home