Friday, March 07, 2008

Ég hef oft verið að velta stúdentapólitík fyrir mér og oft fundist hún hálf asnaleg eitthvað. Las svo Fréttablaðið í dag og þar hittir Þórarinn Þórarinsson aldeilis naglann á höfuðið. Þetta er eins og talað út úr mínum munni nema að ég hefði aldrei getað orðað þetta svona vel:

"Þetta fjaðrafok í Háskólanum er annars lýsandi dæmi fyrir tilgangsleysi allrar umræðu stúdenta og félagslegs brölts þeirra. Stúdentapólitíkin í öllu sínu merkingarleysi er auðvitað besta dæmið en þar keppa fylkingar um völd sem eru ekki merkilegri en hússtjórn í meðal fjölbýlishúsi."

Takk fyrir takk.

3 Comments:

Blogger Laulau said...

HEYR! HEYR!
Akkúrat það sem ég hafði ekki komið hugsunum mínum að, en sé núna að ég er alveg sammála.

5:13 AM  
Blogger lou said...

tótallí sammála :)

btw, búin að linka á þig á blogginu mínu, vona að það sé ei-ókei
kv
Lovísa
www.karaokequeens.net

11:10 AM  
Blogger Lára said...

Í góðu lagi. Skellti þínum upp hérna til hliðar;-)

5:36 AM  

Post a Comment

<< Home